Gunni vann til gullverðlauna í sínum þyngdarflokki á Grapplers Quest, afar sterku móti í uppgjafarglímu sem fram fór í New Jersey í kvöld. Gunnar glímdi við fjórar andstæðinga í þyngdarflokknum og sigraði tvær glímur á stigum og tvær með hengingum m.a. úrslitaglímuna sem hann sigraði á Guillotine. Gunnar féll hins vegar úr leik í opnum flokki á einu advantage gegn sér rúmlega 50 kg þyngri andstæðingi.

Bætt við 21. mars 2010 - 10:34
Hér er frétt um þetta á MBL.is