Sælar.

Hvað fannst mönnum um þetta?

Ég skil ekki af hverju er ekki búið að moka yfir hræið af Coleman. Ég er nokkuð viss um að Rolles Gracie gæti meira að segja lamið hann á þessum tólf sekúndum sem þolið hans endist.

Svo fannst mér Tsjeil Sonnen ótrúlega öflugur. Hef ekki fílað hann neitt sérstaklega þangað til í þessum bardaga. Hann hefur mikla hæfileika til að gera bardaga leiðinlega en þessi var helvíti góður. Ekki síst af því Nate er enginn aumingi.

The ‘Mexecutioner’. Really?

Randy er hress. Næsta skrefið er að ganga berserksgang á Grund og lumbra á vistmönnum.

Mér fannst Matt Serra fínn. Trigg virtist vera búinn að ákveða að tapa og var ekkert með í bardaganum. Svo lítur hann út eins og Mark Coleman þannig það var pínu eins og að horfa á sama bardagann tvisvar.

Ekki besta card sem ég hef séð en næsta verður líklega betra.