Vorönnin byrjaði vel hjá Mjölni í gær með sextíu nýja iðkendur í BJJ tímanum. Stemmningin á æfingunni var góð og tekið vel á því undir leiðsögn James, Gunna og Bjarna. Stækkunin á salnum kemur vel út og nýttist vel fyrir þennan stóra hóp.

Við minnum byrjendur einnig á kickbox tímana sem eru á þriðjudögum og fimmtudögum kl 20:00.

Það er alls ekki of seint að byrja, skelltu þér á æfingu í vikunni!

Sjá myndir frá tímanum í gær:
http://www.flickr.com/photos/mjolnir_mma/sets/72157623015098931/