Árni Ísaks benti mér á að minnst hefði verið á Gunna í The Jordan Breen Show sem er útvarpsþáttur sem m.a. er sendur út á Sherdog. Þátttastjórnandinn er m.a. beðinn að tjá sig um það hvort hann telji að MMA verði ólympíu sport og beðinn að nefna þrjár fightera sem hann telji að gætu slegið í gegn á næsta ári. Hann nefnir Gunna í því sambandi ef hann ákveði að snúa sér aftur að MMA (eins og hann orðar það). Hægt er að hlusta á þáttinn á slóðinni hér að ofan en best er þó að downloada honum og hlusta á hann þannig. Minnst er á Gunna á 1:52 klst. Hér er hægt að downloada þættinum (hægri smella og “Save Target As…”):