Nú virðist allt benda til þess að Renzo Gracie mæti Matt Hughes í apríl í UFC sem verður haldið í Abu Dhabi. Hughes er víst enn fúll eftir að Renzo hengdi vin hans og æfingafélaga, Pat Miletich, árið 2006 og sama ár sigraði Matt fyrsta UFC meistarann Royce Gracie sem eins og allir vita er frændi Renzo. Ég þykist nú samt vita að þessir bardagar séu bara dregnir upp til að ná upp stemningu fyrir væntalegan bardaga Renzo og Matt. En það verður gaman að sjá Renzo aftur í action. Hann er nagli. Meira um þetta á MMA Weekly.