Jæja þá er þetta að skella á. MMA í beinni útsendingu á Íslenskri stöð í fyrsta skiptið.

Við skulum ræða bardagana í þessum þræði.

Ég spái þessu svona:

Rich Franklin vs. Wanderlei Silva
Held að Franklin útboxi Wanderlei kallinn og taki þetta á Decision í hörkubardaga.
Cheick Kongo vs. Cain Velasquez
Kongo á rothöggi. Cain er svakalegur en hann skortir reynslu.
Mirko Filipović vs. Mostapha Al-turk
Ég sá mynd af Cro Cop við vigtunina áðan og gaurinn er í svakalegur formi. Er kominn upp í 233 pund, lítur út fyrir að vera mikið massaðari en hann var. Al-Turk er náttúrulega bara upphitunarbardagi fyrir comebackið hjá honum og það verður bara formsatriði að klára þetta.
Mike Swick vs. Ben Saunders
Held að Swick taki þetta í decision, verður tæpt samt.
Spencer Fisher vs. Caol Uno
Fisher vinnur þetta á rothöggi.