Vek athygli á fínni frétt á bls. 46 (síðustu opnunni) í 24 stundum í dag.
Útdrátt úr henni má líka nálgast hér á mbl.is

Af Gunnari er annars það að frétta að hann kom til Hawaii í nótt en það er 10 tíma mismunur á Hawaii og Íslandi. Gunnar mun dveljast við æfingar með B.J. Penn og hans liði næstu mánuði en eins og flestir vita undirbýr B.J. Penn sig nú fyrir titilvörn sína gegn fyrrum heimsmeistaranum Sean Sherk, en bardaginn fer frem í Las Vegas hinn 24. maí næstkomandi. Penn hefur safnað um sig hópi margra bestu MMA mann í heiminum í dag til að undirbúa sig fyrir þennan mikilvæga bardaga og því ómetanlegt fyrir Gunnar að fá að taka þátt í því.