Sælir félagar

ég er buinn að vera að skoða ýmsar bardagaíþróttir og satt að segja á ég mjög erfitt með að ákveða mig en mig dauðlangar að læra einhverja. svo ég ákvað að spurja herna þar sem að ég held að fólk sem er að stunda þetta er herna og getur þvi vonandi leiðbeint mér. Mig langar að læra einhverja sem er með góða blöndu af fóta og handa vinnu en ekki of einbeytt af öðru hvoru. ég reddaði mér þáttum sem heita Human Weapon sem er að kveikja rosalega á mér. Muay Thai, Savate, KARATE, Judo og svo sá ég eitthvað sem heitir krav Maga sem lookaði cool en ég er buinn að vera að heyra að það sé bara bull.

endilega ef að það eru einhverjir kennarar og leiðbeinendur þá endilega commentið fyrir mig með maili eða bara comment herna