Já þið lásuð rétt! Kallinn fékk vinnu á Reyðarfirði og nú þarf ég að vita hvort einhver bardagalista klúbbur/kennsla sé þarna uppfrá eða í bæunum í kring? MMA væri náttúrulega draumurinn en hef littla trú á að einhver sé með kenslu þarna, Box, júdó, muay-thai og kick-box væri líka snilld en ég er annars ekkert snobbaður á eitthvað annað þótt tæknin virki eitthvað takmarkað í alvöru veseni. Get bara ekki hugsað mér að gera ekki neitt annað en að lyfta því ég reikna með að vera þarna í +2 ár og vill halda mér í formi þol og tæknilega áður en ég kem aftur á höfuðborgarsvæðið (vonandi ekki stífari en spýta!)

Gat ekki hugsað betri stað til að setja þetta heldur en hér á huga.is/bardagalistir vegna ótæmandi fjölda af bardagalista nördum sem hanga hérna ;) Svo ef þið vitið um einhvern stað þarna í kring þá megiði endilega láta mig vita

Eskifjörður, Stöðvafjörður og Egilsstaðir eru meðal annars nálægt og lítið mál fyrir mig að fara þangað á æfingar ef eitthvað sé þar.