Sælt sé fólkið,

Nú vex okkur fiskur um hrygg og eitthvað farið að bera á auknum mannskap hjá Grímni, en ég vildi þá grípa tækifærið og hvetja fólk til að mæta og skoða þetta aðeins…:-)

Stefnir í gott…:-)

Allavega; þá skyldi minnast á aukaæfingar er haldnar verða þriðjudagana 30 október (úr rellunni og beint á æfingu…!-) og svo 6 nóvember nsk. Fimmtudagsæfingunni verður vitanlega - einnig - haldið til þess efnis er mun liggja í fyrirrúmi, en það væri þá allra helst:

(a) ‘Taihenjutsu’ hreyfiaðferðir
(b) ‘Gyokko Ryu Kosshi Jutsu’ bardagatækni
© ‘Kukishinden Ryu Bojutsu’ langstafstækni

…Og svo hvað annað er okkur langar til að glíma - skemmta okkur - við!

Sjáumst og lifið heil…

Kv,

D/N