Sælt sé fólkið, en nú kom vel á vondan og ‘ósigranlegar’ aðstæður séð til þess að ég varð - því miður - að fresta heimkomu eitthvað; þá líklegast þangað til í og um u.þ.b. miðjan næsta mánuð (þ.e.a.s. júní)…

Vitanlega skyldi ég biðjast afsökunar á þessum leiðindum, en skyndilegar - þó ekki svosem ‘alvarlegar’ - breytingar urðu þess valdandi að ég kemst hreinlega ekki frá vinnu, skyldum og öðru slíku…

Vinir og lærlingar, ásamt öðrum aðstandendum Maraþons, hafa sýnt mikið - og velmetið - umburðarlyndi, en nú skyldi kalla á hæfileika þolinmæðinnar þangað til málin útskýrast frekar, þ.e.a.s. um og eftir helgi…

Læt vita um leið og allt kemst á hreint…

Kv,

D/N