Ég vildi bara segja ykkur hvað ég er ánægður með umsjónarmann bardagalista þó að ég hafi aldrei stundað bardagaíþróttir og komi sennilega ekki til með að stunda þær.(ég er alltof mikil bolta kall til þess)
En málið er það að í dag 9.11 þá kíkti ég á grein á forsíðunni sem fjallaði um brottvikningu Wrestling út af áhugamálinu sem mér fannst forvitnileg og mig langaði að sjá afhverju því var vísað út. Ekki það að mér væri ekki sama enda ekki Wrestling fan heldur þvert á móti finnst mér þetta bjánalegt. En nóg um það.
En svo næst þegar ég logga mig inn á Huga þá á ég skilaboð frá obsidian sem ég kíkti á og ég varð ekkert smá ánægður að sjá hvað ég fékk.
En hann hafði séð að ég kíkti á Bardagalistir og hann hafði fyrir því að senda mér skilaboð um að það væri gott og gaman að fá nýtt fólk á áhugamálið og gott að fá ferskt blóð í hópinn.

En ég vildi bara þakka honum fyrir þessi skilaboð og það er honum að þakka að ég er kominn bardagalist stillta á áhugamálið hjá mér.Og hann nær fleirum til sín ef hann heldur þessu áfram.

rokk on<br><br>Ekki bögga svínið
Gerðu hlutina almennilega eða vertu heima.