Um helgina voru æfingabúðir fyrir Gunna og Ingþór undir leiðsögn Árna Ísakssonar. Strákarnir eru að fara að keppa í Danmörku 5. maí á Adrenalín sports mótinu sem er haldið af Christian Graugart, sem þjálfaði hjá Mjölni síðasta sumar.

Árni leiddi strákana í gegnum þrek og tækni-æfingar ásamt því að láta þá sparra lotur. Hver lota stóð í 5 mínútur en nýjir ferskir andstæðingar komu inn á 20-30 sekúndna fresti, sem dugði til að halda strákunum undir fullri pressu allan tímann.
Þakkir fá allir sem sáu sér fært að koma og aðstoða strákana.

Hvorugur hefur fengið lokastaðfestingu á hverjir mótherjar þeirra verða en við munum tilkynna það hér á heimasíðunni um leið og við fáum þær upplýsingar.

Þess má geta að Gunni er á leiðinni til Írlands þar sem hann ætlar að vera við æfingar í einn mánuð fram að keppninni.

Hérna eru myndir frá helginni http://www.flickr.com/photos/mjolnir_mma/sets/72157600006976173/detail/

Sjá betur á www.mjolnir.is

Jón Viðar Arnþórsson
www.mjolnir.is
*************************