Guð minn almáttugur, ég trúi ekki þessum úrslitum. Randy Couture vinnur 50-45 hjá öllum dómurum.

Ég horfði á þetta live í nótt og ég hef aldrei séð eins spennandi MMA bardaga sem var samt svona ójafn. Randy gerði bara það sem honum sýndist þegar honum sýndist það. Ég var um það bil að tyggja af mér hnúana í 3. lotu þegar hann tók sig til og útboxaði risann með fínum combinations, og tók hann niður nánast að vild.

Randy Couture er hérmeð endanlega kominn á hæsta mögulega stall MMA heimsins. Hann tók handritið að Rocky og gerði það að veruleika. Vúhúúúú!!!!