Ég er nýlega byrjaður að skoða þetta áhugamál og er kominn með nokkurn áhuga á bardagalistum.

Allavegna downloadaði ég sjálfsvarnarmyndbandi með Bas Rutten á Torrent og er búinn að horfa á það. Mynbandið var fínt og ég lærði nokkuð sem ég get notað í júdó, verð samt að passa mig að kýla ekki neinn:P

Allavegna tók ég eftir einu sniðugu, ég veit ekki hvort Rutten hugsi það þannig en ég býst við því. Hann er með tattoo bæði í lófunum og á upphandleggjunum.

Ég myndi halda að þessi tattoo allavegna fyrir menn sem eru ekki ofureinbeittir gætu verið nokkuð truflandi, lítur á tattúið og *BAMM* rotaður.


Hvað finnst ykkur?
Þeir sem þekkja fortíðina og skilja nútímann eru öðrum hæfari til að skapa framtíðina.