Ég hef mikinn áhuga á Capoeira og hef verið að lesa þræðina hérna og flestir (gamlir þó) vísa á Kramhúsið. Ég tók mig til og hringdi í þá í dag en þeir eru hættir með Capoeira og ætla ekki að kenna það aftur að mér skylst.

Er það kennt einhversstaðar? Ef ekki, ef nægur áhugi næðist væri þá hægt að koma því af stað?

Þú er ég amateur í þessum efnum og þekki ekki hvaða réttindi menn þurfa til að kenna slíka íþrótt en fyrst hún var kennd hér áður þá geri ég ráð fyrir því að það séu einhverjir með kennararéttindi hérlendis?