Árni Ísaksson hefur formlega verið kynntur sem fyrsti heiðursfélagi Mjölnis. Árni er okkar eini atvinnumaður í MMA og þó hann búi og æfi á Írlandi gefur hann sér alltaf tíma til að styðja við bakið á íþróttinni þegar hann er hérna heima. Það er sannarlega fullt ástæða til að heiðra slíkan fulltrúa íþróttarinnar og við hjá Mjölni erum stolt yfir því að hafa Árna sem heiðursfélaga.