Bæði Pavel Nastula og Vitor Belfort féllu á lyfjaprófi sem var tekið af Nevada State Athletic Commission í kjölfar Pride: The Real Deal keppninnar um síðustu helgi.

Nandralone fannst í sýni Nastula, en 4-hydroxytestosterone í sýni Belforts.

Báðir menn hafa oft verið lyfjaprófaðir áður, Belfort vegna þáttöku í UFC, og Nastula af lyfjaeftirliti Ólympíusambandsins.

Einnig er þetta dálítið skondið þar sem þeir hérmeð halda uppi þeirri hefð að yfirleitt séu það þeir sem tapa sem falla á lyfjaprófi :D



Bætt við 27. október 2006 - 14:48
Já, og hér eru nánari upplýsingar: http://www.sherdog.com/news/news.asp?n_id=5981