Það hefur verið viðrað að kannski væri sniðugt að breyta nafninu á þessu áhugamáli. Sumum finnst “Sjálfsvarnaríþróttir” fremur óþjált og ekki lýsa sérlega vel því sem um er að ræða. Auk þess hafa glöggir menn tekið eftir því að “Sjálfsvarnaríþróttir” er ekki tekið fram á forsíðunni undir “Íþróttir”, og er það vegna þess að það er of langt til að passa inn í formattið.
Bæði hefur verið stungið upp á “Sjálfsvörn” og “Bardagalistir” og endilega látið vita ef þið hafið aðrar hugmyndir.

Núna er í gangi könnun þar sem hægt er að segja álit sitt á þessu tvennu.

obsidian<br><br>obsidian
[LBFR]/Aikikai Reykjavík