Góðan dag,

Ég hef verið að hugsa um að byrja æfingar í einhverskonar bardagalist og var að velta því fyrir mér hvort að hægt sé að nálgast samanteknar upplýsingar um úrval þeirra á íslandi, á netinu.

Mig langar helst að byrja í japanskri íþrótt en það skiptir samt ekki höfuð máli. Samt sem áður hef ég einungis áhuga á íþróttum þar sem einhvers konar belta kerfi er notað. Notagildi í raunverulegum aðstæðum skiptir mig litlu máli:). Ég vil einungis skemmta mér í umhverfi sem ýtir undir framfarir(belta kerfi) og aga. Allar upplýsingar sem þið getið veitt mér eru vel þegnar.