Frábær árangur Trausta í Kóreu

Trausti Már Gunnarsson úr Fjölni í Grafarvogi vann til
gullverðlauna í sínum aldursflokki á opna s-kóreska mótinu í
taekwondo sem haldið var um helgina. Trausti Már, sem er 18 ára
gamall, keppti í léttvigt og lagði bandarískan andstæðing í
úrslitum, 8-1. Í undanúrslitum lagði hann keppanda frá S-Afríku,
3-0, í 8-manna úrslitum sat hann hjá. Keppendur í léttvigtin voru
alls 16. Árangur Trausta Más er frábær en þetta var aðeins viðbót
á hans ferli en hann er núverandi Norðurlandameistari í sínum
aldursflokki. Nokkrir af snjöllustu taekwondo-unglingum í S-Kóreu
voru meðal keppenda en þessi íþrótt er upprunnin í landinu.