Nýtt byrjendanámskeið í Aikido hefst hjá Aikikai Reykjavík þann 3. september með tveim opnum kynningaræfingum:

Mánudaginn 3. september, klukkan 20:00 - 21:00
Miðvikudaginn 5. september, klukkan 20:00 - 21:00

Allir eru velkomnir. Ef þú hefur áhuga á að koma og kynna þér Aikido og starfsemi klúbbins þá er þér velkomið að koma og annaðhvort fylgjast með eða taka þátt. Til að taka þátt þarftu aðeins að vera í léttum buxum (ekki stuttbuxum) og léttum bol.

Byrjendaæfingar verða á mánudögum og miðvikudögum kl. 20:00-21:00 og á laugardögum kl. 16:00-17:00

Nánari upplýsingar er hægt að nálgast á heimasíðu Aikikai Reykjavík http://here.is/aikikai eða með því að senda póst á aikikai@here.is eða obsidian@hugi.is

obsidian
Aikikai Reykjavík