Ég man að þessi síða kom upp og átti að verða full af fréttum og greinum um MMA á íslensku, en svo varð ekkert úr þessu. Hvernig væri að þeir aðillar sem voru með þetta tækju þetta upp aftur og gerðu fyrstu alvöru íslensku MMA síðuna. Við erum svona 10 árum á eftir restinni af heiminum í MMA byltingunni og ef maður myndi spyrja 10 manns út á götu hvað MMA væri myndu líklega svona 6 segja “ha”, 2 myndu segja “ge´´veik slaxmálgeppni sá þetta á nettinu hjá mini mínum marr ÞAÐ MÁ SKO ALLT Í ÞESSU”, einn myndi halda að hann væri sérfræðingur um þetta og fara að fræða mann um það hvernig Raus Greisí sem er úr fjölskyldu þar sem allir kunna Júdo mætti í náttfötum og vann stráka…ef maður væri heppinn væri 1 sem myndi vita hvað þetta er.

MMA verður að þróast hér eins og annarsstaðar og það er í rauninni skylda okkar sem vitum eitthvað um þetta að gera það.

Var það ekki Freestyle sem var með síðu? Það væri gaman ef hann myndi endurvekja hana og jafnvel bæta óháðu spjallborði þangað inn og fleira. Örugglega margir hérna sem myndu vilja taka þátt.

Bara hugmynd…