Nú er ég að lesa bók eftir Eddie Bravo, Jiu Jitsu Unleashed, þar sem hann fer yfir ýmis brögð og tæknir úr BJJ. Það sem vekur svolítinn áhuga er að hann talar um sjálfan sig eins og einhver rosa uppfinningarmann í næstum því öllum útskýringum, segir alltaf “this is a move I invented”…það eru frekar skiptar skoðanir um þetta og sumir segja að hann sé að taka heiðurinn af brögðum eins og Twister sem voru til löngu áður en hann fór eitthvað rúlla sér um í BJJ-inu.

Var bara að spá hvað fólki hér á huga, og þá sérstaklega þeim sem hafa verið að stúdera BJJ finnst um þennan mann…