Ekki vera að standa í því að hrauna yfir það. Ég les flestalla þræði sem hér eru póstaðir og er hérna inni á hverjum degi þannig að þegar ég sé tröll sem er með eitthvert skítkast eins of JimmyR þessa dagana þá eyði ég því bara. Tröll elska athygli og það besta sem að þið getið gert er að SVARA ÞEIM EKKI.

Ef að þið finnið ykkur knúna til að svara fullum hálsi og verja ykkar bardagalist eða eitthvað svoleiðis, þá getið þið alveg eins búist við að ég eyði ykkar svari líka.

Ef þið viljið virkilega gera þessa þursa brjálaða, ekki svara þeim.