Ég eyddi núna fyrir 2 mínútum kork á þessu áhugamáli frá notanda sem að sendi hann inn til þess eins að kynda undir hinum eilífa(og mjög svo undarlega) ríg milli box áhugamálsins og ákveðinna aðila hér á bardagalistir….ég býst fastlega við að menn muni væla og veina og kalla mig fasista og það er gott og gilt, menn mega gera það ef þeir vilja en hafið eitt í huga:

þræðir þar sem innihalda engin rök, ekkert umræðuefni og enga hugsun aðra en að slengja fram sleggjudómum með það í huga að koma af stað rifrildi verða ekki liðin meðan ég hef eitthvað um þau mál að segja….ef þið viljið tala um kosti og galla box samanborið við aðrar bardagalistir þá er það guðvelkomið, en þá verður að vera eitthvað INNIHALD í því sem að þið skrifið.

Ef þið hafið eitthvað við þetta að athuga getið þið snúið ykkur til annarra stjórnenda eða JReykdal og fengið mig settann af.

Þursar og sorparar verða miskunnarlaust grisjaðir út, þannig að ef að þið viljið rífast, gerið það allavega á þroskaðann hátt.

Takk fyrir.