Carlson Gracie, einn allra besti og virtasti BJJ maður allra tíma lést á sjúkrahúsi í Chicago í nótt af völdum lifrasýkingar. Hann var 72 ára gamall.

Carlson var öflugur Vale Tudo bardagakappi á yngri árum og lúbarði meðal annars Aldemar Santana, eina manninn sem að nokkurntíman rotaði Helio Gracie föðurbróðir Carlsons. Hann er einnig lærimeistari fleiri MMA manna en hægt er að telja og fyrsti Gracie-fjölskyldumeðlimurinn til að leggja mikla áherslu á að nemendur hans væru fjölhæfir og kynnu líka högg, spörk og standandi glímu. Einnig voru nemendur hans þeir fyrstu til að leggja áherslu á að æfa án Gi.

Meðal þeirra þekktu bardagalistamanna sem að lærðu við fótskör Carlsons eru:

Stephan Bonnar
Wandelei Silva
BJ Penn
Ricardo Arona
Vitor Belfort
Kenny Florian
Eddie Bravo
Antonio Rogerio “Minotoro” Nogueira
Antonio Rodrigo “Minotauro” Nogueira
Mario Sperry
Renzo Gracie
Ralph Gracie
Cesar Gracie
Ryan Gracie
Hugo Duarte
Nino Schembri
Rigan Machado
Jean-Jaques Machado
Carlos Machado
Matt Serra
Nick Serra
Elvis Sinosic
Allen Goes
David Terrell
Ricardo de la Riva
Cavalcanti

o.fl, o.fl……

Mæli ég með að allir huga menn sem einhverja virðingu bera fyrir sönnum meistara taki smátíma til að minnast hans, á hvern þann hátt sem þeim þykir henta best.

Hvíli hann í friði.