Hvernig á að brjóta saman dobok(taekwondo búning)?? Margrét sem er með mér í hóp segir að krökkunum hennar hafi verið kennt að brjóta svona saman, og að það séu gg strangar reglur um svona. Meira en helmingurinn af mínum hóp(byrjendur, fullorðnir) kann það ekki, á meðan fimm sjöttu af barnahópnum kann það. Ég var að hugsa, ef þetta er svona strangt, afhverju þá ekki að kenna að brjóta saman?? Svo langar mig að læra það, bara svona til vonar og vara(þ. e. ef það skyldi koma á prófi)og var að spá í hvort einhverjir væru með upplýsingar eða vefsíður þar sem það væri þá kennt.
Fyrirfram takk
-psychomermaid