Vildi bara aðeins minna fólk á að það er fylgst með þessu forum þó að þetta sé kannski ekki stæðsta áhugamálið á huga. Ég hef ekki mikið þurft að skipta mér af þessu forum þar sem 99% af ykkur sem komið hingað hagið ykkur almennilega en seinustu vikurnar hafa verið leiðindarkomment og stælar í gangi, ég kem því miður oft of seint og þá varla hægt að bjarga þræðinum þannig ég hef látið það standa, en vildi bara segja að ég ætla að taka harðar á svona núna, og tveir notendur hafa verið bannaðir fyrir að vera með dónaskap og leiðindi hérna (að kalla aðra notendur huga “hórur” er t.d. ekki í lagi), og vonandi verður aftur rólegt hérna úr þessu.

Vildi bara aðeins minna á að það er fylgst með hérna þó það hafi verið lauslegt og kannski ekki svo augljóst undanfarið. Vill líka undirstrika að þetta þýðir auðvitað ekki að það megi ekki hafa hitaðar umræður eins og hefur oft verið hérna, það er hægt að vera harðorður og beinskeittur án þess að vera með leiðindi og skítkast.

Með kveðju,

Kári.