Sæl öllsömul….

þá erum við hjá SBGi komin verð, stað og tíma á æfinguna með John Kavanagh

Hvar: í sal Karatefélags Þórshamars
Hvenær: 6. ágúst á milli 10:00 og 14:00
Verð: KR 3.000,-
Fyrir hverja er þetta?: Hvern sem er, (16 ára og eldri) sama hvað þið hafið lært áður eða ekki lært neitt!
Hvað verður kennt? John Kavanagh er mjög góður að sleppa úr slæmum stöðum og einstaklega góður að nota sína eigin þyngd vel. Hann er eitthvað um 70-73 kg en hann virkar eins og hann sé hátt í 200kg þegar hann er að halda manni niðri (ég tala af eigin reynslu!) Hann mun líklega fara yfir það sem fólkið sem mætir vill læra.
Hann æfir líka mikið anti-ground-and-pound, þannig að þau ykkar sem hafið áhuga á MMA ættuð alls ekki að missa af þessum gaur!

Skráning er á e-mailið mitt bjarnib@sbg.is og í síma 698-9658

Vonast til að sjá sem flesta!