Sæl veriði öllsömul!

Það er þrír Írar að koma að heimsækja okkur í SBGi á Íslandi núna í ágúst. Aðalgaurinn heitir John Kavanagh og það koma með honum 2 af aðstoðarkennurum hans. Við verðum með stuttar æfingabúðir laugardaginn 6. ágúst sem verða að öllum líkindum í Þórshamri.

Kavanagh er algjört undrabarn í BJJ þar sem hann er einungis búinn að æfa í rétt rúm 5 ár og jaðrar við að vera svartbeltingur. Hann er um 175 á hæð og rétt rúm 70 kíló. Ég, Arnar og Jón Gunnar hjá SBGi á Íslandi höfum allir glímt við hann og erum sammála um að hann virkar eins og hann sé 2-300 kg þegar hann er ofan á manni. Það er líka magnað að fyljgast með honum glíma, hann skiptist á að vera að kremja mann eða hoppandi og skoppandi í kringum mann og nokkurn veginn break dansandi á manni.

Hvet alla sem áhuga hafa á að mæta (takmarkað pláss samt!)