TAKTU ÞÁTT Í ÍSLANDSMETI!

Á íþróttadegi Kópavogs (á morgun- laugardaginn 8. maí) býður Karatedeild Breiðabliks öllum á (ókeypis) æfingar í karate og um leið að eiga möguleika á því að setja Íslandsmet. Fjölmennasta karateæfing sem haldin hefur verið?
Fyrir alla, óháð líkamsástandi, aldri eða kyni!
5-12 ára kl. 11:00
13 ára og eldri kl. 13:00.
Hér er tækifærið til að prófa að koma á karateæfingu.

Æfingarnar fara fram í stóra salnum í íþróttahúsinu í Smáranum.
Léttur klæðnaður, engir skór eða sokkar.

Við viljum bjóða þér að taka þátt !

Karatedeild Breiðabliks
www.breidablik.is/karate