Æfingabúðir með Meistara In Kwon Jang


Væntanlegur til landsins er master In Kwon Jang til að halda æfingabúðir á vegum Fjölnis. Hér er á ferðinni einn hæstgráðaði kennari sem við höfum fengið í heimsókn til félagsins, en hann er 6. dan í Taekwondo og 3. dan í Hapkido. In Kwon Jang mun kenna í æfingabúðum í Fjölnishúsinu dagana 29.-31. desember og á Akureyri 2. - 3. janúar. Æfingabúðirnar eru öllum opnar og eru iðkendur í öðrum félögum og aðrir hvattir til að mæta.

Nánari upplýsingar um In Kwon Jang er að finna undir dagskrásíðunni og á heimasíðu Dojang Dreki.

Texti: Sigursteinn Snorrason
Stjórnandi á