Eftir að hafa gert þrjár tilraunir síðustu daga til að senda þessa tilkynningu inn sem atburð hef ég nú gefist upp og set þetta hér í staðinn.

ÍSLANDSMEISTARMÓT Í KUMITE 2003
Íslandsmeistaramótið í Kumite 2003 verður haldið laugardaginn 15. nóvember í Íþróttahúsinu Austurbergi og hefst kl. 10.00.
Áætlað er að keppa á tveimur völlum í undanúrslitum í einstaklingskeppni og er stefnt að því að úrslit hefjist um 13.30. Að þeim loknum hefst liðakeppnin.