Haustmótið 15. – 16. nóvember
BÖRN, 12 ára og yngri
15. nóvember

Á laugardaginn byrjar fjörið kl. 10.00 á keppni í Púmse. Keppt er í eftirfarandi flokkum: 1flokkur 10.-9. geup. 2 flokkur 8.-7. geup. 3 flokkur 6.-5. geup og svo 4 flokkur 4. geup og yfir. Allir fá eina medalíu fyrir þátttöku í mótinu og sigurvegari fær bikar. 1sta sæti gefur 5 stig, 2. 4 stig 3. 3 stig 4. 2 stig og loks 5. 1 stig. Sama stigakerfi er í Kjorúgí og Kjokpa og fær stigahæsti keppandinn í samanlögðu verðlaun sem keppandi mótsins.

Kjokpakeppnin hefst strax að lokinni keppni í Púmse hjá hverjum flokk, nánar auglýst síðar. Keppt er í hraðbroti, þ.e. keppendur fara í gegn um þrautabraut á tíma.

Kjorúgíkeppnin hefst svo kl. 12.00. Skipt er í fjóra þyngdarflokka á mótstað. Hver bardagi er 2x1 mín með 30 sek. hvíld á milli. Keppt er eftir útsláttarfyrirkomulagi.
Samanlögð stig úr öllum greinum eru reiknuð út til að fá sigurvegarann, ef um jafntefli er að ræða (þ.e. jafnmörg stig) er bráðabani milli þeirra keppenda. Bráðabaninn fer eftir stærð keppenda, annaðhvort er keppt í Púmse, Kjorúgí eða Kjokpa eða jafnvel öllu.
Verð per keppanda er 2.000 kr fyrir tvær eða allar greinar, 1.500 kr fyrir eina. Allir keppendur eru skyldir til að vera með fóta- og handahlífar. Ristarhlífar leyfilegar.



FULLORÐNIR, Bikarmót TKÍ
16. nóvember

Keppni byrjar á Púmse kl. 10.00 með undanúrslitum. Keppendur gera eitt Taegeuk eða Yu Dan Ja Púmse (svartbeltingar) að eigin vali. Keppt er í tveimur flokkum: 10. - 5. geup og 4. geup og yfir. Gefin er einkunn og gildir hæsta einkunn til sigurs. (3 dómarar). Hæstu 5 einkunirnar koma keppendum áfram í úrslit þar sem þeir gera annað form að eigin vali.

Keppni í hraðbroti hefst um kl. 10.00. Keppt verður á einni braut og duga bestu 5 tímarnir í undanúrslitum til að komast í úrslit. Úrslit fara fram strax á eftir úrslitum í Púmse. Brautin og brotin verða ekki auglýst fyrr en á mótsstað.

Keppni í Kjorúgí hefst eftir Kjokpa og Púmse. Keppt er í karla- og kvennaflokki, minior (13-15 ára), junior (15-17 ára) og senior (18 ára+), 10-5 geup. og 4. geup og yfir. Ólimpískir þyngdarflokkar hjá senior, jafnir þyngdarflokkar hjá minior og junior (2-3 flokkar eftir fjölda keppenda). Vigtun á mótstað um morguninn. Allir keppendur eru skyldir til að vera með allar hlífar. Ristarhlífar aðeins leyfilegar í minior.

Skráningar skulu berast í gegn um yfirkennarana fyrir 8. nóvember. Skráningar milli 9. – 12. nóvember kostar 5.000 kr á keppanda. Ekki er tekið við skráningum eftir 12. nóvember. Greiða skal gjöld fyrir 12. nóvember. Engin endurgreiðsla á gjöldum og engar undantekningar.

Mótstjórn ber enga ábyrgð á slysum á mótstað. Hvert lið skal tilgreina fyrirliða sinn við skráningu.
Verð per keppanda er 2.500 kr fyrir tvær eða allar greinar,
2.000 kr fyrir eina.