Æfingabúðir með Hiroaki sensei, 6.dan aikido verða á vegum Aikikai Reykjavík (www.aikido.is) 23. - 26. október næstkomandi.
Hiroaki er sonur Kobayashi sensei (8.dan) sem kom hingað í fyrra. Kobayahsi sensei æfði árum saman með O-Sensei, upphafsmanni aikido, en stofnaði eigið dojo 1972.
Hiroaki byrjaði að æfa, aðeins 3ja ára og hefur mjög skemmtilega tækni og á auðvelt með að koma henni til skila.
Allir sem hafa áhuga á að kíkja eru að sjálfsögðu velkomnir.