Íslandsmótið í taekwondo er núna á laugardaginn 12. apríl og er haldið í íþróttahúsinu við austurberg í breiðholti. Allir eru velkomnir að koma og horfa og ekkert kostar inn. Mótið hefst klukkan 10 á keppni í unglingaflokkum og mun eflaust standa langt frameftir degi. 103 keppendur eru skráðir til leiks og búast má við mörgum góðum bardögum. Endilega kíkjið.