Helgina 6-9. febrúar mun meistari okkar ÍR-inga, Master
Michael Jörgensen, halda æfingabúðir í ÍR-heimilinu. Michael
var yfirþjálfari ÍR frá stofnun þess en fluttist til Noregs 1995 og
er núna þjálfari norska landsliðsins. Með honum koma Endre
Steffensen og Christine sem bæði eru í norska landsliðinu.

Nemendum úr öðrum félögum hefur verið boðið að taka þátt í
æfingabúðunum að þessu sinni og eru þeir beðnir að skrá
sig fyrir 31. janúar hjá yfirþjálfara síns félags.
Gjald verður 2000 kr. fyrir alla helgina og skal það greiðast
strax á fyrstu æfingu. Allar frekari upplýsingar má finna á
heimasíðu ÍR og ef einhverjar spurningar vakna má hafa
samband við stjórn félagsins eða nýta sér umræðuherbergi
heimasíðunnar. Við áskiljum okkur fullan rétt til að takmarka
fjölda á æfingar eftir því sem húsrúm leyfir.
http://www.taekwondo.is/i