Ég vildi bara benda á að vorönnin hjá Karatedeild Breiðabliks hefst 6. janúar. Deildin hefur á skömmum tíma vaxið í að vera ein stærsta karatedeild/-félag á landinu enda er aðstaðan alveg frábær: Sérhannaður karatesalur og ótakmarkaður aðgangur að tækjasal, heitum potti og gufu.

Verðið er heldur ekki af verri endanum: Aðeins 12.600 kr. fyrir þrjár æfingar á viku í tæpa fimm mánuði. Kíktu á www.breidablik.is/karate og sjáðu allt um stundatöflu, verð, afslætti, deildina, íþróttina og síðast en ekki síst: Hvað iðkendur deildarinnar hafa um deildina að segja.