Grein tekin frá Taekwondo Ísland - www.taekwondo.is:
___________________________________

Danmörk á móti Kóreu

Þann 14. desember var mót í boði Taekwondofélags Nörrebro, Kórea á móti Danmörk. Þetta var stórskemmtilegt æfingamót og boðið var upp á sýningu í hléinu. Frá Kóreu kom mjög ungt landslið, svo þarna voru í raun ekki komnir sterkustu keppendur Kóreu, þó voru mjög góðir krakkar þarna á ferð.
Í danska liðinu voru flestir úr A-landsliðinu. Þó voru nokkrir reyndir bardagamenn sem ekki eru í landsliðinu. Landsliðsþjálfarinn, Bjarne Johansen, var þjálfari danska liðsins á mótinu.

Ég tók fullt af myndum á mótinu og skellti einnig nokkrum saman í myndband.

Erlingur Jónsson
___________________________________

Frá www.taekwondo.is
http://www.taekwondo.is/default.asp?news=123&Doc=130