Skellti mér á þessa ræmu í gær og fannst hún bara ágæt. Ekki eins mikið af bardagaatriðum og ég bjóst við en ég varð samt ekkert fyrir vonbrigðum með það.
Jackie Chan aumur leigubílstjóri verður að ofurtöffara fyrir tilkomu smóking fata sem hann kemur höndunum á. Ég vill eiginlega ekkert segja meira frá myndinni enda þoli ég ekki svoleiðis spoilera.
Jackie er fyndinn að vanda og fínar aukasenur í endann. Ég er nú ekki sammála því að þetta sé besta ræman hans eins og ég sá einhverstaðar, þó hún sé nú kannski örlítið betur leikin og aðeins meira lagt í hana að vanda.

Það er leikur í gangi á sambió vefnum en hann rennur víst út í dag.
jollyboy6