Nú ættu Ármanningar og Bjarkariðkendur að geta glaðst aðeins.

Af hverju?

Því heyrst hefur að Master Park meistari minn og fleiri úr liðunum sé á leiðinni hingað til lands einmitt núna um helgina og mun hann þá væntanlega lenda í Keflavík snemma á föstudagsmorgun eftir næturflug frá Baltimore.

Master Park er með 6. dan og heitir fullu nafni Kyung Sik Park hann er undir Grand Master Lee sem er með 9.dan. Þeir eru báðir frá Kóreu. Hann er með klúbb í Baltimore, Central Taekwondo, og hafa iðkendur úr Ármanni verið duglegir að heimsækja hann þangað (nú síðast þegar Sigga tók svarta beltið fyrir stuttu).

Látum nú ljós okkar skína og sýnum meistaranum hversu fær við erum orðin.

How do you like Iceland Sabunim Park

Jollyboy6 :)
jollyboy6