Í dag verður lögð fyrir Íþrótta- og tómstundaráð tillaga fulltrúa Sjálfstæðisflokks um að kanna hug íþróttafélagsins Fjölnis í Grafarvogi um að selja byggingarrétt á lóðum sem nú eru ætlaðar fyrir æfingasvæði og nýta fjármuni til að byggja strax upp æfingaaðstöðu annars staðar.

Á fundi borgarstjórnar í gær sagðist borgarstjóri viljug til að ræða hvort önnur svæði en Gylfaflöt væru hentugri sem íþróttasvæði Fjölnis. Sagði hún að til greina kæmi að gera lóðina að byggingarlóð en íþróttasvæði yrði byggt upp annars staðar.
———

Ég er svolítið forvitinn að vita hvað og hvert þeir ætla að flytja þetta og er þetta aðeins til að hagnast á lóðum sem ætlaðar voru til íþróttasvæðis Fjölnis? Ef þeir ætla að flytja þetta, þá verða þeir væntalega að kaupa aðra lóð. En samt segjast þeir nota peninganna til að byggja upp annarstaðar. Fá þeir lóðir gefins annarstaðar eða er mismunurinn á Gylfafleti og hinum X stað svo mikill að hægt sé að nota mismuninn til að byggja upp íþróttasvæði?
Er einhver sem veit meira um málið?

Sá frétt fyrst á www.taekwondo.is sem er tekin frá mbl.is.
http://www.mbl.is/mm/frettir/show_framed_news?cid=1&nid=805026