grein frá www.taekwondo.is

8 Maí 2002
Ítalinn hafði betur


Í undankeppni á Evrópumótinu í Taekwondo sem fram fer í Tyrklandi þessa daga, keppti Björn Þorleifsson Norðurlandameistari á móti Claudio Noland Ólympíukeppanda. Þurfti Björn að láta í minni pokann fyrir Claudio sem er gífurlega sterkur keppnismaður, með fjórum stigum gegn tveimur. Í fyrstu lotu, fékk Claudio þrjú stig, og Björn ekkert. Að sögn Jóns Ragnars þjálfara og aðstoðarmanns, var Björn óvenju stressaður í fyrstu lotu og var að gera klaufamistök. Lota númer tvö, var svo stigalaus. Í síðustu lotu fór svo Björn loksins í gang, og skoraði tvö stig á móti einu. En þá má segja að það hafi verið of seint að snúa vörn í sókn og sigra, þar sem Claudio var þegar kominn með gott forskot.
Bardagi Björns og Claudio var númer fjögur á þriðja degi mótsins.

Claudio sem er 27 ára og lögreglumaður að atvinnu, er nú þegar kominn í úrslit. Í bardaga 18 vann Claudio, Giorgos Nikellis frá Kýpur 5-2. Í bardaga 34, vann Claudio svo Rosendo Alonso frá Spáni á tækni, en bardaginn fór 3-3.
Claudio mun svo keppa í fjögurra liða úrslitum á morgun á móti Ertan Bastug frá Tyrklandi.

Upplýsingar:
Bardagi 4.
Björn – Claudio
1. 0-3
2. 0-0
3. 2-1
úrslit: 2-4

Á heimasíðu mótsins má sjá tölurnar 5-2, en það er stafsetningarvilla. Bardaginn fór 4-2.
http://www.eurotkd2002.com/day3.asp

Texti: Erlingur Jónsson
Stjórnandi á