Góður árangur Nökkva skilar sínu. Hann var valinn íþróttamaður Sandgerðis. Til hamingju Nökkvi!

Þessi frétt er fengin frá www.taekwondo.is.

——————————————

Nökkvi Þór Matthíasson íþróttamaður Sandgerðis árið 2001

Nökkvi Þór Matthíasson taekwondomaður er íþróttamaður Sandgerðis árið 2001.
Kjörinu var lýst á hátíðlegri samkomu sem fór fram 5. mars s.l. í Reynisheimilinu í Sandgerði.

Nökkvi Þór vakti athygli á árinu sem einn af efnilegri taekwondomönnum landsins. Í apríl varð hann Íslandsmeistari í -58 kg. flokki byrjenda 17 ára og eldri. Í október fékk Nökkvi Þór silfur í -51 kg. flokki unglinga á Opna írska meistarmótinu. Þá var hann kjörinn taekwondomaður Reykjanesbæjar árið 2001.

Taekwondo er ung íþróttagrein á Íslandi og ánægjulegt að ungur Sandgerðingur skuli þar raða sér í fremstu röð. Árangur Nökkva Þórs Matthíassonar skýrist af ástundun, áhuga og elju sem aðrir íþróttamenn geta tekið sér til fyrirmyndar.

Aðrir íþróttamenn sem voru tilnefndir til kjörs á íþróttamanni Sandgerðis árið 2001 voru Gunnar Davíð Gunnarsson frá knattspyrnudeild Ksf. Reynis, Magnús G. Sigurðsson frá körfuknattleiksdeild Ksf. Reynis og Sigurður Jónsson frá Golfklúbbi Sandgerðis. Voru þeir allir heiðraðir af Sandgerðisbæ.

Þá veitti Íþrótta- og tómstundaráð Sandgerðisbæjar Freyju Sigurðardóttur og Heiðari Sigurjónssyni sérstakar viðurkenningar fyrir framúrskarandi árangur á árinu 2001. Þau eiga það sameiginlegt að stunda íþróttagreinar sem standa utan Íþrótta- og Ólympíusambands Íslands.

Freyja Sigurðardóttir er óumdeild drottning fitnessíþróttarinnar á Íslandi.
Á árinu 2001 varð hún bæði Íslands- og bikarmeistari í IFBB-fitness og jafnframt bikarmeistari í Galaxy-fitness. Freyja sýndi það að hún er kominn í fremstu röð á heimsvísu þegar hún lenti í 15. sæti á heimsmeistaramótinu í Brasilíu á síðasta ári. Freyja hefur margsýnt að hún er frábær fulltrúi íþróttafólks úr Sandgerði.

Heiðar Sigurjónsson er án efa efnilegasti bridgespilarinn í Sandgerði og þó víðar væri leitað. Hann hefur frá unga aldri stundað íþrótta sína með Bridgefélaginu Munanum í Sandgerði. Á árinu 2001 varð Heiðar Íslandsmeistari yngri spilara í sveitakeppni og átti sæti í landslið Íslands sem varð Norðurlandameistari með yfirburðum. Þrátt fyrir ungan aldur hefur Heiðar spilað bridge í fjölda ára og hann sannar að þegar áhugi, ástundun og hæfileikar fara saman er hægt að ná í fremstu röð.

Frétta tilkynning send á Taekwondo Ísland frá Ólafi Þór Ólafssyni
íþrótta- og tómstundafulltrúa Sandgerðisbæjar.
www.sandgerdi.is