Sæl öll sömul,

Hann Björn Þorleifsson tapaði fyrsta bardaganum sínum á móti besta manni Finna í -72kg flokki svartbeltinga. Björn keppti á móti Finnanum á NM 2002 og vann hann 5-3. Bardaginn að þessu sinni fór 5-5, og Björn sýndi yfirburði en fékk 2 x kyongo = 1 í mínus frá dómarunum þannig að lokaskorið varð 5-4 Finnanum í vil.

Annars er það að frétta af Birni að hann brotnaði á þumalfingri vinstri handar í fyrstu lotunni á móti Finnanum, og núna í morgunsárið er hann í aðgerð á hendinni vegna þessa brots.

tkd
kveðja