Fyrsta Íslandsmeistaramótið í Brasílísku Jiu jitsu (BJJ) var haldið í húsnæði Glímufélagsins Ármanns í dag. Vöxtur íþróttarinnar hefur verið hraður síðustu ár og er BJJ orðin ein af vinsælustu bardagaíþróttum landsins. 42 þáttakendur tóku þátt frá fjórum félögum sem stunda BJJ. Keppt var í þyngdarflokkum karla, opnum flokki karla og kvenna sem og liðakeppni félaga.

Dómarar voru Daníel Davíðsson og James Davis. Aðrir starsmenn voru Jón Viðar, Haraldur Nelson Pétur Marel, Bylgja Imma og Elín. Formaður þakkar þeim vel unnin störf sem og myndatökumannanna.

Margar skemmtilegar glímur áttu sér stað og greinilegt að mikil framför hefur átt sér stað síðan á setningarmótið var haldið í fyrra. Framtíð íþróttarinnar er björt og margir hæfileikaríkir keppendur. Úrslit voru þessi.

Opinn flokkur kvenna

1. Kristín Sigmarsdóttir, Pedro Sauer
2. Bjarndís Helena Friðriksdóttir, Mjölni

-67 karlar

1. Halldór Már Jónsson, Mjölni
2. Tómas Hrafn Jónsson, Mjölni
3. Davíð Jóhannesson, Mjölni

-74 karlar

1. Tómas Gabríel Benjamin, Mjölni
2. Bjartur Guðlaugsson, Mjölni
3. Stefán Geir Sigfússon, Mjölni

-81 karlar

1. Jóhann Helgason, Mjölni
2. Bjarni Baldursson, Mjölni
3. Jósep Valur Guðlaugsson, Mjölni

-88 karlar

1. Gunnar Nelson, Mjölni
2. Ingþór Örn Valdimarsson, Fenri
3. Bjarni Kristjánsson, Mjölni

-99 karlar

1. Haraldur Óli Ólafsson, Fjölni
2. Ívar Þór Ágústsson, Mjölni
3. Bjarki Már Jóhannsson, Mjölni

+99 karlar

1. Bjarni Már Óskarsson, Mjölni
2. Helgi Hafsteinsson, Mjölni
3. Eggert Djaffer, Fjölni

Opinn flokkur karla

1. Gunnar Nelson, Mjölni
2. Ingþór Valdimarsson, Fenri
3. Jóhann Helgason, Mjölni

Liðakeppni

1. Mjölnir A
2. Mjölnir B

Heildarstig

Mjölnir 51 stig
Fjölnir 4 stig
Fenrir 4 stig
Pedro Sauer 3 stig

(gefin eru 3 stig fyrir 1.sæti, 2 stig fyrir annað sæti og 1 stig fyrir þriðja sæti, þrefald vægi í liðakeppni)