Það er eitthvað sjálfsvarnaræði að ganga í skólanum mínum og allir að leita sér að félaga af hinu kyninu til að lumbra á. Held reyndar að þetta sé meira svona fyrir stelpur, þ.e. að þær fái aðeins á lumbra á strákunum.

Ég fór á eitt stutt svona námskeið vegna vinnunnar, það var talið að við værum í stórhættu eftir smá atvik sem ég fer ekkert útí hér. En ég verð að viðurkenna að ég man ekki neitt … held ég myndi bara gera eitthvað ef ég lenti í hættulegum aðstæðum! Er það málið eða er það bara vegna þess að ég var svona stutt …