Þrír Evrópumeistarar í júdó 30ára + Glæsilegur hópur Judomanna keppti nýlega í Prag á Evrópumeistaramóti öldunga. Keppta var í hinum venjulegu þyngdarflokkum og var einnig aldurskipt þ.e.a.s 50 ára, 60 ára og svo framvegis. Íslendingar eignuðust 3 evrópumeistara, Bjarni Friðriksson, Halldór Guðbjörnsson, og Benedikt Pálsson sigruðu allir í sínum þyngdarflokkum. Einnig fékk hann Kári Jakobsson brons í sínum þyngdarflokk.
Þetta er hreint út glæsilegur árangur og gaman að geta sagt að við Íslendingar eigum 3 evrópumeistara í Judo. Til hamingju með þennan glæsilega árangur.

Hér á myndinni er einnig hægt að sjá Michael Vachum sem er fyrrum landsliðsþjálfari Íslands og sá sem alið hefur upp marga af okkar bestu keppnismönnum

Tekið af www.ippon.is
Stjórnandi á