Bob Sapp THE BEST Nafn: Bob Sapp
Aldur:34 ára
Hæð:195Cm
Þyngd:145Kg
Ferill:8-2-1 í MMA
Bardagastíll:NFL

Bob Sapp reyndi fyrir sér í amerískum fótbolta en mistókst það og datt út úr valinu vegna þess að hann mætti ekki í sterapróf. Þá ákvað hann að fara að keppa í einhverskonar toughman boxkeppni og vakti hann mikla athygli þar og fékk samning hjá Pride og K-1 stuttu eftir. Hans frægustu bardagar eru þegar hann sigraði Ernesto Hoost K-1 meistara tvisvar og hann á ýmsa góða sigra í MMA. Hann keppti einu sinni við meistarann Nogueiera og lamdi hann í hakkabuff. En Nogueira er svona BJJ gaur sem er frekar hommaleg íþrótt finnst mér og leiðinlegt að horfa á og honum tókst að ná trikki á Bob Sapp og vinna á endanum. Svo keppti Bob Sapp við Cro Cop í K-1 og Cro Cop braut á honum augntóftina og Bob Sapp fór að gráta.

Bob Sapp hefur komið fram í yfir 200 sjónvarpsþáttum í Japan og andlit hans eða nafn má finna á óteljandi vörum allt frá bolum upp í eplakökum (Bob Sapp eplakökur eru mjög vinsælar í Japan) Bob Sapp fær hundruðir þúsunda bandaríkjadala fyrir að koma fram í auglýsingum eins og þessari: http://video.google.com/videoplay?docid=-6501830897084806455&q=bob+sapp hann er einnig mjög vinsæll hjá kvenþjóðinni í Japan hef ég heyrt en ég hef líka heyrt að hann sé með hálfgerðann hestaskökul og þess vegna sé ég ekki fyrir mér að þessar litlu japönsku dúllur myndu koma heilar frá bólförum með þessum manni.

Hér eru nokkur myndbönd með Bob Sapp;

http://video.google.com/videosearch?q=bob+sapp